Vallargerðisbræður
02.11.2007 23:56:16 / eysteinn

Skoðar einhver þessa síðu ennþá?

Er bara að velta því fyrir mér. Sjálfur hef ég ekki farið hér inn í háa herrans tíð á meðan þú lesandi góður ( ef þá einhver er ) hefur beðið í örvæntingu eftir nýrri færslu. Erum samt á leiðinni til Eigilsstaða á mo ef einhver hefur áhuga. Ef þér finnst að þessi síða eigi að vakna til lífsins láttu þá vita í athugasemdum....

Með ómældri og ástríkri kveðju þinn einlagi Eysteinn 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 23:04:50 / eysteinn

Hugmyndasamkeppni

Ef þú ert með góða hugmynd að tittli á diskinn okkar endilega gerðu athugasemd.


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 22:53:40 / eysteinn

Hehe

Ef það er einhver sem skoðar þessa síðu ennþá, þá erum við v-brothers verið of uppteknir við að sigra heiminn og ekki haft tíma fyrir ykkur, föstu aðdáendur okkar.

En við erum að vera að mastera diskin og erum nú leggja loka hönd á upptökur. Einginn miskunn.

                                                                                                                  EH


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 01:57:01 / eysteinn

Mynd

Vorum að syngja á sumardaginn fyrsta í Hveragerði. Pres (forsetinn) var mættur séstaklega til að hlusta á okkur og landbúnaðarráðherra. Eftir sönginn var okkur boðið fríar vöfflur (þegar aðrir þurftu að borga) á VIP borði, þar sem okkur var þjónað til borðs. Úff svona er stjörnulífið.

Er búin að gleyma hvernig ég set upp myndir. En það er mynd á: http://www.sudurland.is/ljosmyndir/gallery.asp?action=viewimage&categoryid=106&text=&imageid=5896&box=&shownew 

check it out!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 18:28:25 / hnokki

numero dos

Upptöku session númer tvö er nú lokið. Jább það þýðir að það er einungis ein upptöku törn eftir og svo er dislurinn klár. Við tókum upp 6 lög í viðbót með okkar ástkæra Didda. Það fer að styttast í þetta krakkar mínar!! Á síðasta sunnudag sungum  við í fermingar veislu sem var sjúklega gaman. Þar gleymdum við okkur söngnum og leiknum. Tær snilld.

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 23:10:38 / hnokki

Börn

Jæja börn mín góð...einhvern tímann sungum við í surprise-partýi og þar var einhver kona sem heyrði okkur og pantaði okkur í annað surprise-partý...jahá það vill nú skemmtilega til að bæði surprise-partýin voru haldin fyrir mömmur sem voru að nálgast einhverjum flottum aldri......já......við sungum líka fyrir stuttu í orkuveitu húsinu (minnir mann soldið á geimskip) þar sem við töluðum um hversu feitt það væri að halda partý þar....jafnvel surprise-partý!!.....en við töluðum um að bjóða bara snillum og frægu fólki, helst líka fjöldan af blaðamönnum...við vorum að velta því fyrir okkur hversu miklir spaðar við yrðum eftir slíkt partý. Millarnir að spila á efstu hæð með sínar nettu tango sveiflur og síðan væri það Buff í aðalsalnum að halda uppi mega stuði. Nóg væri af fríu víni á barnum og allir yrðu glaðir....þessi veisla yrði haldin í tilefni þess að vallargerðisbræður væru ný búnir að vinna grammy verðlaun fyrir plötu sína..sem fer að nálgast bráðum...talandi um plötuna, við erum að fara hitta hann Didda okkar aftur núna um helgina og að fara taka upp næstu 6 lög plötunar....mhm bara allt að gerast........

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 22:54:32 / rikki

ÉG VEIT, ég er slappur í blogginu.

Eins og titilin sagði þá er ég mjög slappur í blogginu og er það ekkert á dagskrá hjá mér að bæta mig.
En mig langaðinú bara að fræða ykkur aðeins um geisladisk sem að er mjög líklega að fara í vinnslu, hjá okkur bræðrunum.  En á honum munu vera nokkrir af okkar bestu slögurum og meira að segja kanski eitthvað nítt.

En þetta má ekki vera allt of langt, svo að ég ætla bara að segja bæjó.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 13:03:24 / hnokki

gigg

Vallargerðisbræður verða á morgun (23. feb)  kl. 12:00 að syngja á lagningardögum MH. Allir sem vilja koma horfa eru velkomnir.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 16:22:41 / eysteinn

Halló

Um síðast liðna helgi var farið í Reykholt í þeim tilgangi að taka upp Bergmál, verkið eftir Rögu Gísla sem við fluttum úti í Japan. Við Vallargerðisbræður fórum á unda öllum kórum á fös og tókum upp lög með færasta upptökumanni Íslands, Didda fiðlu. Við náðum 8 lögum og þá er ferlið hafið og því mjög farið að stittast í disk.

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 17:17:32 / hnokki

ok

þá erum við komnir aftur á skrið eftir langt jólafrí.....um daginn sungum við í
þorrablóti það var bri.....konan sem pantaði okkur vildi að við færum í upptökur hjá manninum hennar og það var mjög gaman að heyra....eftir sönginn fögnuðum við á hlölla.
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 00:20:08 / hnokki

ATH!!

JÆJA KÆRU FÉLAGAR......Í KVÖLD KL. 10:00 VERÐA HALDNIR GEÐVEIKIR TÓNLEIKAR Á BAR 11. ÞAR STÍGA Á STOKK HLJÓMSVEITIRNAR HJALTALÍN, PAN OG AÐ SJÁLSFSÖGÐU         FULL SPEED POWER PARTY....ALLIR AÐ MÆTA OG FYLGJAST MEÐ ADDA OG HNOKKA LEIKA LISTIR SÍNAR.

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 19:36:11 / Addi

Þá er það ákveðið.


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 10:37:45 / Addi

Við erum svo slappir bloggarar...

Jæja jæja. Lítið úr heimi V-brothers að frétta nema upptökur sem verða 27-29 janúar. Verið er að taka upp verk Röggu Gísla "Bergmál" sem var flutt úti í Japan. Einnig verða einhverjar upptökur samhliða þessum upptökum, þ.e. eitthvað af söng Skólakórs Kársnes og einnig eitthvað með Vallargerðisbravas.

Af hliðarverkefni Adda og Hnokka, rokkgrúppunni "Full Speed Power Party "er það helst að frétta að verið er að setja lagið "Human Factor" bráðlega í spilun á 977 og X fm, jafnvel í Rokklandi? Viðræður um myndband við lagið eru líka í fullu fjöri. Ef einhver vill sjá bandið live er um að gera að fylgjast með blöðunum því líklega verða tónleikar með Mammút, Pan eða Bertel á 11unni eða Dillon í næstu viku og um þá helgi er road trip út í Westman Islands sem vert er að tjekka á því bandið verður í fáránlega góðum gír með einhverja frumflutninga og læti.

Peace.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 23:56:40 / eysteinn

Gleðileg jól

Ég óska öllum aðdáendum Vallargerðisbræðra gleðilegra jóla. ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4